09.04.2012 04:26
Konur og karlar...
Konur og karlar...
Nafnahálsmen á kúlukeðju
Nafnahálsmen á kúlukeðju
Núna er hægt að fá nafnahálsmen sem passa bæði konum og körlum. Þú velur einfaldlega hvaða texta þú vilt fá, og ef þú vilt fá eina eða fleiri plötur. Ég er með mismunandi stærðir á plötunum og fjöldi stafa sem kemst fyrir fer auðvitað eftir stærð plötunnar. Textinn er 3mm.
Það er eins og venjulega hægt að panta á designsandrag@gmail.com
Kveðja,
Sandra
24.03.2012 10:57
Nafnaskart
Nafnaskart
Hérna eru fyrsta myndirnar af nafnaskartið... Hugmyndin er sú að það á að vera hægt að bera með sér börnin/fjölskyldan sín hvert sem er og það nálægt hjartastað :)
Þú velur einfaldlega hvaða texti sem þú villt (sem kemst fyrir á taginu). Það verður hægt að velja hvort hengið sé sett á kúlukeðju eða leðurreim. Einnir verður hægt að velja hvort stafirnir séu dökkir eða ólítaðir (sjáið myndirnar að neðan). Ég verð líka með "unisex"útgáfu sem passa bæði konum og körlum. Ég verð með nokkrar útfærslur, en fleiri myndir koma bráðum.
Namnsmycken: Här kommer första bilderna på namnsmyckena... Idén är att man ska kunna bära med sig sina nära och kära (barn, familj, mamma etc) vart än man går och det nära hjärtat :) Du väljer helt enkelt vilken text du vill (som får plats på tagen). Du kommer att kunna välja om du vill ha hänget på en kulkedja eller en läderrem. Du kan även välja om bokstäverna är mörka eller ofärgade (se bilder nedan). Jag kommer också att ha en "unisex" variant som passar både tjejer och killar. Flera bilder kommer inom kort!
Nafnaskart með ferskvatnsperlum og kristall (á kúlukeðju).
Namnsmycke med sötvattenpärlor och kristall (på kulkedja)
Nafnaskart með ferskvatnsperlum og kristall (á kúlukeðju).
Namnsmycke med sötvattenpärlor och kristall (på kulkedja)
Nafnaskart með ferskvatnsperlum og kristall (á leðurreim).
Namnsmycke med sötvattenpärlor och kristall (på läderrem)
19.03.2012 18:32
Nýjungar í vor
Nýjungar í vor
Er að undirbúa fyrir fullt af nýjungum sem koma í vor. Hlakka til að sýna ykkur myndir! Þær eru í vinnslu...
Kv. Sandra
29.01.2012 19:37
Ótitlað
Vetur...
Núna þegar jólin er búin og þar af leiðandi öll jólaljósin farin, getur verið ansi dimmt úti... Til þess að lífga aðeins upp á tilveruna er um að gera að setja á sig smá litaglatt skart! Hérna er síð keðja með kristal og rósum úr túrkissteinum...
06.12.2011 08:40
Bráðum koma blessuð jólin
Smá jólastemning...
Ákvað að setja inn smá mynd frá aðfangadag 2009, bara upp á að fá smá jólastemning! Eruð þið ekki öll farin að undirbúa fyrir jólin? Í ár verður ekki hægt að panta skart frá mér beint, en ég sel flott skart í jólapakkann í Bardúsu á Hvammstanga, Mýrinni í Kringlunni Reykjavík og í Sirku á Akureyri. Fer svo afstað á fullu með framleiðslunni aftur á nýju ári!
Kveðja,
Sandra
21.11.2011 17:22
Jólaundirbúningur
Jólaundirbúningur
Þá er komið að því; eftir tæpa viku er fyrsta í aðventu! Loksins má byrja að skreyta heima og undirbúa, því bráðum koma jólin... Fyrir ykkur sem eru farin að spá í jólagjöfum, þá er komin ný sending af skarti frá mér í Sirku á Akureyri (www.sirka.is). Endilega koma við þar ef þið eruð á Akureyri!
Síðan er skartið líka alltaf til sölu í Mýrinni í Kringlunni í Reykjavík.
16.07.2011 18:42
Hrafnagil
Handverkshátíð á Hrafnagili
Jæja, þá er undirbúningurinn fyrir Handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafirði 2011 í fullum gangi. Hátíðin verður haldin 5.-8. Ágúst og opið verður 12.00-19.00 alla dagar.
Þetta er í 3 skiptið sem ég verð þar til þess að selja skartið mitt... Ég er strax orðin mjög spennt, enda hefur þetta alltaf verið mjög skemmtileg og vel skipulögð hátíð! Það er líka þarna fagleg nefnd sem velur úr hverjir komast að (enda mikill samkeppni um það) og er því handverkið mjög vandað- og fjölbreytt. Ef þið eruð ekki strax búin að ákveða að kíkja, þá mæli ég mjög með því!
Ég verð þarna með nýjungar og líklega einhver tilboð líka...
Vonast til þess að sjá sem flesta.
- 1
